Íslendingar eru áberandi svartsýnni en aðrar þjóðir á efnahagsástandið á næstu mánuðum. Í júní síðastliðnum töldu 71% Íslendinga að efnahagsástandið myndi enn versna á næstu 3 mánuðum. Lesa fréttina á visir.is
Þunglynd þjóð
Í fréttaskýringaþættinum Kompás þann 19. janúar 2008 var m.a. fjallað um áhrif geðlyfja á þunglyndi. Smelltu hér til að sjá þáttinn.
Meltingarvegurinn og geðheilsa
Bókin“Meltingarvegurinn og geðheilsa” er þýðing bókarinnar “Gut and Psychology Syndrome” eftir Dr. Natasha Campbell-McBride. Bókin fjallar um náttúrulega meðferð við einhverfu, þunglyndi, ofvirkni, geðklofa, lesblindu og athyglisbresti.
Stofnaður hefur verið nýr sjóður til styrktar þeim sem eiga erfitt andlega. Sjóðurinn nefnist „ÞÚ GETUR!" og er nýtt afl í baráttunni fyrir forvörnum og geðheilsueflingu. Lesa fréttina á visir.is.
Einelti er samfélagsvandamál
Margir telja afleiðingar eineltis vera eitt mesta heilsufarsvandamál nútímans og sérfræðingar hafa komið þeim skilaboðum til skóla og foreldra að mikilvægt sé að börnin geti leitað til ábyrgra aðila sem þau treysta verði þau fyrir einelti.
Ávallt hægt að hringja í 1717 þótt símanúmer séu í vanskilum
Í ölduróti undanfarinna vikna hafa margir nýtt sér gjaldfrjálsan hjálparsíma Rauða Krossins 1717. Um árabil hafa Síminn og Rauði Krossinn haft með sér samning um að Rauði Krossinn beri engan kostnað af símtölum í 1717 og hefur hann verið endurnýjaður og undirritaður til eins árs. Ennfremur hyggst Síminn leggja fram styrk í formi fjárframlags vegna kostnaðar af auglýsingum á 1717 númerinu í þeim tilgangi að koma því á framfæri við fólk sem á í sálrænum erfiðleikum hvert það getur leitað eftir aðstoð. Þess ber að geta að Síminn hefur ávallt opna línu í 1717 fyrir þá sem eru með símanúmer í vanskilum. Það er því alltaf hægt að hringja í 1717 eins og 112 þótt lokað sé fyrir símtöl í önnur númer.