Bókin“Meltingarvegurinn og geðheilsa” er þýðing bókarinnar “Gut and Psychology Syndrome” eftir Dr. Natasha Campbell-McBride. Bókin fjallar um náttúrulega meðferð við einhverfu, þunglyndi, ofvirkni, geðklofa, lesblindu og athyglisbresti.
Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð með sérmenntun í næringarfræði og taugasjúkdómafræði. Sonur hennar greindist með alvarlega einhverfu þriggja ára gamall og með breyttu mataræði og notkun próbíótískra bætiefna hefur hún náð gríðarlegum árangri í að meðhöndla son sinn. Dr. Campbell-McBride rekur mjög virta meðferðarstofnun í Bretlandi þar sem hún aðstoðar börn með námserfiðleika og þroskaraskanir, og er því bókin sérstaklega stíluð upp á að hjálpa fjölskyldum þessara barna. Hún hefur einnig sérhæft sig í næringarfræði fyrir fullorðna með meltingar- og ónæmissjúkdóma.
Jóhanna Mjöll Þórmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, þýddi bókina og stofnaði fyrirtækið Matur og heilsa ehf. en sjálf á hún dóttur með námsörðugleika og hefur séð miklar framfarir hjá dóttur sinni með breyttu mataræði.
Dr. Campbell-McBride telur að bein tengsl séu á milli námsörðugleika, mataræðis og ástands meltingarvegarins. Hún hefur á undanförnum árum gefið út ógrynni efnis um þessi tengsl og flutt fjölmarga fyrirlestra og erindi á ráðstefnum um námserfiðleika og meltingarkvilla. Í þessari bók tekur hún saman það mikilvægasta úr efni sínu og miðlar af sérþekkingu sinni og reynslu.
Innsýn höfundar í efnið er einstök þar sem hún nálgast það ekki aðeins sem fagmanneskja, heldur einnig sem foreldri, enda nýtur hún mikillar virðingar á sínu sviði og meðferðarstofnun hennar og ráðleggingar álitnar í algjörum sérflokki.
Bókin er til sölu á www.maturogheilsa.is en einnig fæst hún í Heilsuhúsinu, Maður lifandi, Yggdrasill og völdum Eymundsson verslunum.


